9. Kjarnaviðhorf og lífsreglur
Láttu lesa fyrir þig!
Í síðasta kafla vorum við að skoða sjálfvirkar neikvæðar hugsanir
, en hvaðan koma þær og hvað veldur því að við hugsum svona? Komið hefur í ljós að rótgróin viðhorf stjórna að miklu leyti þessum hugsunum.
Þessi viðhorf hafa búið um sig í hugarheimi okkar á löngum tíma og mótast af ákveðnum skoðunum eða sannfæringu sem kölluð eru kjarnaviðhorf
.
| |
Ólánið sem elti mig orðið hefði minna, gæti maður sjálfan sig séð með augum hinna.
—Kristján Ólason
|