HAM HANDBÓK UM HUGRÆNA ATFERLISMEÐFERÐ
Hugræn atferlismeðferð (HAM) hefur náð mikilli útbreiðslu undanfarin ár í tengslum við ýmsan heilsuvanda, en þó einkum þunglyndi og kvíða. Rannsóknir sýna að HAM er gagnleg aðferð til að ná og viðhalda bata í þunglyndi.
Í dag eru margir þeirrar skoðunar að fyrsta hjálp við sálrænum vanda felist í sjálfshjálp. Margar sjálfshjálparbækur hafa komið fram, en undanfarið hefur í auknum mæli verið boðið upp á hugræna atferlismeðferð þar sem nýtt er tækni veraldarvefsins. Þetta hefur skilað árangri sem gefur fyrirheit um enn frekari útbreiðslu þessarar nálgunar.
Starfsfólk geðsviðs Reykjalundar hefur þróað meðferðarhandbók í hugrænni atferlismeðferð við þunglyndi í mörg ár. Nú er þessi bók útgefin til notkunar fyrir almenning og meðferðaraðila en hún er samtímis komin inn á veraldarvefinn þar sem nálgast má texta bókarinnar og verkefni, bæði á ritformi og á hljóðskrám, sem gerir hana aðgengilega fyrir mun fleiri en áður m.a. þá sem eiga við lesblindu að stríða.
Valgerður Baldursdóttir, yfirlæknir geðsviðs Reykjalundar
VEFURINN ER OPINN ÖLLUM
Þú getur notað allt efni vefsins þér að kostnaðarlausu. Smelltu á flipann hér til hliðar sem heitir Meðferðarhandbók en þar er hægt að opna alla tólf kafla bókarinnar. Verkefnablöðin eru í lok hvers kafla og hægt er að hlusta á hvern kafla fyrir sig með því að smella á takkann Láttu lesa fyrir þig. Einnig getur þú hlaðið niður allri bókinni með einni hljóðskrá (MP3) sem er staðsett hjá verkefnablöðunum í lok 12. kafla.
BÓKSALA
Bækurnar eru m.a. seldar á göngudeild Reykjalundar, í Bóksölu stúdenta HÍ og bókabúðum Eymundsson.
Hægt er að panta bókina beint á netinu eða með tölvupósti á vefsala@reykjalundur.is og kostar handbókin
kr. 5.500 og verkefnaheftið kr. 2.500 en Sigrún Ólafsdóttir ritari (sími 585-2147) tekur einnig á móti pöntunum
og veitir upplýsingar um magnafslátt.
VERÐLAUN
Geðsviðið fékk afhent hvatningarverðlaun Forvarna- og fræðslusjóðsins ÞÚ GETUR á Alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum 10. okt. s.l. fyrir útgáfu HAM-meðferðarhandbókar um hugræna atferlismeðferð bæði í bókarformi og á veraldarvefnum. Formaður sjóðsins Ólafur Þór Ævarsson lét eftirfarandi orð falla um þá sem fengu hvatningarverðlaun í þetta sinn: „Þessir aðilar eru að vinna að úrbótum, aukinni sérhæfingu og eflingu faglegra vinnubragða í skipulagi og veitingu geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi. Þau eru framúrskarandi hvert á sínu sviði hérlendis.“
UMMÆLI
"Mig langar að undirstrika hvað ég er ánægð með þetta og þakka ykkur innilega fyrir frábært framtak. Þetta er eitthvað sem ég hef vonað að gæti verið til í langan tíma og núna er það orðið að veruleika. Þið eruð frábærar!! Það er ótrúlega flott líka hvernig þetta er sett upp! Með hljóðskrám og stækkanlegu letri og allt! Það er eiginlega að koma betur inn hvað þetta er í rauninni stórkostlegt núna ;) Ég er viss um að þetta eigi eftir að bjarga mörgum lífum og bæta mörg svo um munar. Þetta er svona eitthvað sem er svo frábært að maður áttar sig ekki á að það sé raunverulegt alveg strax. hehe.
TAKK og aftur, til hamingju!!"
Andrea
"Ég tel að hér sé um stórmerkt framtak að ræða og góða gjöf til íslensku þjóðarinnar. Verkið finnst mér sambærilegt við stórvirki Helga Hallgrímssonar náttúrufræðings; Sveppabókina og Lagarfljótsbókina, þýðingu Íslendingasagnanna og verka Laxness á þýsku vegna bókaráðstefnunnar í Frankfurt í ár, útgáfu greindarprófa Wechslers á Íslandi, Íslensku orðabókina o.þ.h.
Til hamingju með gott framtak!"
Már Viðar Másson, sálfræðingur